Saturday, July 31, 2010

Endurfæðing

Allir héldu að það væri dautt. Steindautt. En vitið til, það lifir! Bloggið lifir!

Já gott fólk, ég er byrjaður að blogga aftur. Ástæðan er einföld. Ég var búinn að lofa því að leyfa allt of mörgum heima á klakanum að fylgjast með mér meðan ég er hérna í námi í BNA, og svoleiðis samskipti á fésinu myndu taka allt of mikinn tíma. Ég hefði engan tíma til að læra. Ekki viljum við það, ha...?

Þar af leiðandi greip ég til þess örþrifaráðs að endurvekja þessa rykföllnu og ryðguðu síðu. Þannig geta allir þeir sem áhuga hafa einfaldlega tékkað hingað inn af og til og vonast til þess að ég hafi nennt að skella einhverju inn. Nei djók, ég verð ofur duglegur... *hóst*

Þannig að...stay tuned!

1 comment:

  1. Flott, þá þarf ég s.s. ekki lengur að taka bók með í vinnuna heldur fæ einhverjar sögur hér :) Takk fyrir :D Ég hlakka til. Kv, Carina

    ReplyDelete